Armband úr línunni Sær eftir orrafinn, með gráum ferskvatnsperlum, brons dropum og silfur dropum. Hafið umlykur okkur öll. Sjórinn, undirdjúpin, þetta kraftmikla náttúruafl heillar okkur og hræðir í senn. Við berum óttablandna virðingu fyrir hafinu og krafti þess sem gefur og tekur. Mjúkur og ávalur dropi sem er saklaus í smæð sinni myndar öldu sem með stærð sinni og krafti skapar heilan heim. Galdrar felast í undirdjúpunum þar sem leyndarmálin leynast og furðuverkin verða til. Perla úr skel ratar í keðju um háls, hún er fjársjóður undirdjúpanna, sæborin drottning. Sagan sýnir perluna í stóru hlutverki í verkum meistaranna, Stúlka með perlueyrnalokk greipist í minni okkar með sinni ljóðrænu fegurð. Leyfðu göldrum sædrottningarinnar að fanga þig.
Almennt verð
46,900 kr
Almennt verð
0 kr
Útsöluverð
46,900 kr
Útsala
Uppselt
Skattar innifaldir.
Tókst ekki að sækja upplýsingar um afhendingu
Frí heimsending-þegar pantað er fyrir 15.000 kr. eða meira
Skiptimiði fylgir öllum pöntunum-á ekki við um sérpantanir
Orrifinn skapar táknræna og listræna skartgripi í Reykjavík. Verkin eru unisex, persónuleg og bera með sér sterka tilfinningu fyrir formi og sögu.
Efni
Silfur, Brons
Steinn
Perla
Lengd armbands
16 - 19 cm
Gott að vita
01
Af hverju dökkna silfurskartgripir?
Silfur getur dökknað þegar það kemst í snertingu við loft, raka, snyrtivörur og önnur efni. Þetta er eðlilegt og þýðir ekki að skartgripurinn sé skemmdur.
Oft er hægt að endurheimta gljáann með silfurklút eða viðeigandi hreinsun. Komdu með gripinn í verslun ef þú ert ekki viss um hvaða aðferð hentar.
02
Hvað þýða merkingarnar 925, 585 og 750?
Merkingin 925 stendur fyrir sterlingsilfur sem inniheldur 92,5% hreint silfur.
Merkingin 585 táknar 14 karata gull og 750 táknar 18 karata gull. Merkingarnar segja til um hlutfall hreins góðmálms í vörunni.
03
Hvernig geymi ég skartgripina mína?
Geymdu skartgripi á þurrum stað, helst í öskju eða mjúkum poka. Gott er að geyma gripi aðskilda svo þeir rispist ekki eða flækist hver í annan.
Forðastu að geyma skartgripi í miklum raka eða beinu sólarljósi í langan tíma.
04
Hvernig hugsa ég best um skartgripina mína?
Skartgripir endast lengur ef farið er vel með þá. Taktu þá af þér við íþróttaiðkun, sund, sturtu, garðvinnu og önnur störf þar sem þeir geta orðið fyrir höggi, raka eða rispum.
Forðastu einnig að skartgripir komist í beina snertingu við ilmvatn, snyrtivörur, hárvörur og sterk hreinsiefni.
Val á valkosti leiðir til þess að síðan endurhleðst að fullu.