Uppselt
Fara í vöruupplýsingar
1 af 1

KALI ARMBAND

KALI ARMBAND

Silfurarmband fáanlegt með rhodiumhúð og gullhúð. Henna munstur- og líkamsskraut er ævaforn siður sem á sér um 5000 ára sögu og er vinsælt form í mörgum indverskum athöfnum á borð við giftingar og fæðingar. Henna hefur margar mikilvægar þýðingar eins og hamingju og gæfu, og með því að setja táknin á handarbakið má finna til aukinnar verndar. Blóm og krónublöð standa fyrir hamingju og gleði en vínviður og laufblöð fyrir tryggð og lífskraft. Kali gyðjan er móðir alheimsins, guðdómlegur verndari og tákn frelsis.

Almennt verð 13,900 kr
Almennt verð Útsöluverð 13,900 kr
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir.
  • Frí heimsending þegar pantað er fyrir 15.000 kr. eða meira
  • Skiptimiði fylgir öllum pöntunum á ekki við um sérpantanir
  • Sækja í verslun Kringlan eða Smáralind
Skoða allar upplýsingar
EVA - KALI ARMBAND13,900 kr
Hönnuðurinn

EVA

EVA vinnur með silfur og klassísk form. Útkoman er mjúk og tímalaus hönnun sem sameinar fágun, einfaldleika og kvenlega nærveru.

Efni
Ródíumhúðað, Silfur

Gott að vita

Af hverju dökkna silfurskartgripir?

Silfur getur dökknað þegar það kemst í snertingu við loft, raka, snyrtivörur og önnur efni. Þetta er eðlilegt og þýðir ekki að skartgripurinn sé skemmdur.

Oft er hægt að endurheimta gljáann með silfurklút eða viðeigandi hreinsun. Komdu með gripinn í verslun ef þú ert ekki viss um hvaða aðferð hentar.

Hvað þýða merkingarnar 925, 585 og 750?

Merkingin 925 stendur fyrir sterlingsilfur sem inniheldur 92,5% hreint silfur.

Merkingin 585 táknar 14 karata gull og 750 táknar 18 karata gull. Merkingarnar segja til um hlutfall hreins góðmálms í vörunni.

Hvernig geymi ég skartgripina mína?

Geymdu skartgripi á þurrum stað, helst í öskju eða mjúkum poka. Gott er að geyma gripi aðskilda svo þeir rispist ekki eða flækist hver í annan.

Forðastu að geyma skartgripi í miklum raka eða beinu sólarljósi í langan tíma.

Hvernig hugsa ég best um skartgripina mína?

Skartgripir endast lengur ef farið er vel með þá. Taktu þá af þér við íþróttaiðkun, sund, sturtu, garðvinnu og önnur störf þar sem þeir geta orðið fyrir höggi, raka eða rispum.

Forðastu einnig að skartgripir komist í beina snertingu við ilmvatn, snyrtivörur, hárvörur og sterk hreinsiefni.