Uppselt
Fara í vöruupplýsingar
1 af 1

BLEIKA SLAUFAN 2026

BLEIKA SLAUFAN 2026

- Ekki er hægt að nota afsláttarkóða þar sem ALLUR ágóði rennur til Krabbameinsfélgasins -

Hönnuðir slaufunnar í ár eru listaparið Tanja Levý, hönnuður, og Jökull Jónsson, arkitekt. Saman reka þau hönnunarstofuna Studio Pluto. Slaufan varð til samhliða krabbameinsmeðferð Tönju og veitir einstaka innsýn í ferlið þegar krabbamein kollvarpar tilverunni.

Bleikur október 2025 var áhrifamikill í lífi þeirra þegar Tanja greindist með brjóstakrabbamein. Hún var þá 36 ára með ársgamalt barn þeirra á brjósti. 

Slaufan er tákn sem fólk getur speglað sig í; hvort sem það hefur sjálft greinst, er aðstandandi eða vill einfaldlega sýna málefninu stuðning.  

Sparislaufan 2026 er stílhreint, gullhúðað koparhálsmen í samlitri keðju. Fremri borði slaufunnar er spegilsléttur og táknar tímabilið fyrir greininguna, en aftari borðinn er hrjúfur og táknar tímabilið eftir greininguna og þær áskoranir sem fylgja því. Sprungan táknar rofið sem verður á lífinu og þrír dökkbleikir Swarovski steinar fegra sprunguna sem tákn um von, styrk og samstöðu.  

Þau sóttu innblástur í japanska aðferð sem kallast Kintsugi þar sem brotnir hlutir eru límdir saman með gulli til að heiðra brotin, ekki til að fela þau heldur sýna þau. Brotin segja sögu hlutarins og hann er talinn ekkert síður fallegur þótt að brotin sjáist. 

Almennt verð 22,900 kr
Almennt verð 0 kr Útsöluverð 22,900 kr
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir.
  • Frí heimsending þegar pantað er fyrir 15.000 kr. eða meira
  • Skiptimiði fylgir öllum pöntunum á ekki við um sérpantanir
  • Sækja í verslun Kringlan eða Smáralind
Skoða allar upplýsingar
Bleika Slaufan 202622,900 kr

Nánari upplýsingar

Efni
Gullhúðað, Kopar
Steinn
Swarovski
Vörunúmer
2026

Gott að vita

Af hverju dökkna silfurskartgripir?

Silfur getur dökknað þegar það kemst í snertingu við loft, raka, snyrtivörur og önnur efni. Þetta er eðlilegt og þýðir ekki að skartgripurinn sé skemmdur.

Oft er hægt að endurheimta gljáann með silfurklút eða viðeigandi hreinsun. Komdu með gripinn í verslun ef þú ert ekki viss um hvaða aðferð hentar.

Hvað þýða merkingarnar 925, 585 og 750?

Merkingin 925 stendur fyrir sterlingsilfur sem inniheldur 92,5% hreint silfur.

Merkingin 585 táknar 14 karata gull og 750 táknar 18 karata gull. Merkingarnar segja til um hlutfall hreins góðmálms í vörunni.

Hvernig geymi ég skartgripina mína?

Geymdu skartgripi á þurrum stað, helst í öskju eða mjúkum poka. Gott er að geyma gripi aðskilda svo þeir rispist ekki eða flækist hver í annan.

Forðastu að geyma skartgripi í miklum raka eða beinu sólarljósi í langan tíma.

Hvernig hugsa ég best um skartgripina mína?

Skartgripir endast lengur ef farið er vel með þá. Taktu þá af þér við íþróttaiðkun, sund, sturtu, garðvinnu og önnur störf þar sem þeir geta orðið fyrir höggi, raka eða rispum.

Forðastu einnig að skartgripir komist í beina snertingu við ilmvatn, snyrtivörur, hárvörur og sterk hreinsiefni.